Glingló klukkan sló...
Síður sem þið verðið að skoða
05.06.2006 11:52:51 / eygloms

Heimgeim

Nú er ég búin að kaupa mér miða heim og ég kem 23.júní veiveivei. Það er föstudagur og ég býst við mikilli gleði og glaumi þá um kvöldið er það ekki?? Svo er ég barasta að flytja til London í haust...veiveivei!! meiri ævintýri og gaman hjá mér. Ég ætla að gera eitthvað rosa skemmtó þar og líka vinna náttlega. En allavega taka mér skólapásu þar til ég er búin að ákveða hvað mig langar að læra meira í mastersnámi. En nú er bara að pakka og gera allt klárt áður en ég kem heim eftir örfáa daga.

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 14:12:13 / eygloms

Búin!

Jæja krakkar, nú er ég búin!  Ég þarf aðeins að laga sænskuna mína og skila svo lokaskilum bara sem fyrst.  Það var auðvitað ekkert sett útá efnið eða ritgerðina sjálfa í vörninni í morgun heldur því barasta hrósað í hástert enda hér meistaraverk og metsölurit á ferð, en skriflega sænskan mín var ekki alveg að gera sig og verður það víst til þess að ég fæ G fyrir ritið en ekki VG en það er bara í fínasta lagi og ég er hæst ánægð með það (G stendur fyrir godkänt en VG stendur fyrir väl godkänt). 

Ég er soleiðis súperánægð með að vera búin með þetta og langar til að klára lagfæringar og soleiðis bara sem fyrst svo að ég geti sagt skilið við skólann í bili. Ójá!! Mamma hans Bigga og maður hennar eru komin í hólminn og við förum og hittum þau á eftir í bænum þannig að ekki gefst mikill tími fyrir að laga dótið fyrr en kannski á föstudag.  En þangað til að ég fer í bæinn þá ætla ég að borða og horfa á daytime TV af því að ég get það og má það... kannski er eitthvað ómerkilegt eins Tyra Banks Show í sjónvarpinu. en sáuði þetta á mbl í dag... ég á ekki til orð:

“Hópur vopnaðra manna, sem taldir eru vera liðsmenn í í morgun og lagði undir sig höfuðstöðvar lögreglunnar í bænum. Lögreglusveit staðarins lagði á flótta eftir að hafa varið höfuðstöðvarnar klukkutímum saman”.

Þetta er orðrétt heil frétt það eru engar meiri upplýsingar.  Ritgerðin mitt góða er nú betur orðuð en þetta þó að hún sé á sænsku, ég ætti kannski að fá mér vinnu sem prófarkalesari á mbl eða vísi, það er af nógu að taka!! 

Nú er ég kokkí og montin og ætla að leyfa mér það...allavega í dag!

 Lifið heil, ykkar Eygló.


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 15:06:50 / eygloms

Búin en samt ekki alveg...

Jæja vinir mínir og félagar, nú er ég búin með blessaða BA ritgerðina og skilaði henni fyrir 5 mínútum síðan, 5mínutum í lokaskil en samt var ég fyrst í mínum hóp að skila!  Ekki er allt samt búið enn því á miðvikidaginn í næstu viku milli klukkan 13 og 15 þarf ég að verja þetta helv... og gagnrýna aðra ritgerð, sem ég er ekki enn búin að fá í hendurnar enn á von á henni hvað og hverju.  Á miðvikudaginn klukkan 15 er ég semsagt komin í sumarfrí.  Ef allt gengur að óskum, kannski fæ ég svo hræðilega kommenta á ritgerðina mína að ég verð að skrifa aftur og skila henni í ágúst, eða bara um jólin!! Hvur veit...  Við vonum ekki.  En nú ætla ég ekkert að gera meira í dag og bíða eftir að fá þessa ritgerð sem ég þarf að lesa og byrja á því á morgun.  En lifið heil og hugsið til mín á miðvikudaginn í næstu viku milli 11 og 13 á íslenskum tíma!!

Kveðja, ykkar Ólgye.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 15:17:36 / eygloms

Æði pæði!

Æði pæði...gaman að vera að læra og vera að klikkast á ritgerð og fá svo svona sent, þetta heldur í mér lífinu við ritgerðarskrif...sem eru by the way að verða búin!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 21:02:20 / eygloms

Ójá!

Allt á fullu á Amanuensvägen (það er sko gatan mín).  BA bara bráðum búið, nokkrir dagar bara og þá get ég skilað þessu helv... vonandi bara á þriðjudaginn.  Við fallega fólkið hér á Lappis (en það hverfið mitt, stúdentahverfið) ætlum að halda sumarhátíð á morgun og bjóða til okkar þeim sem við þekkjum, þið megið endilega koma líka!!! Ég tek mér skrifipásu og drekk bjór og fer í leiki og svo ætlum við að grilla og hafa gaman þar til dagur rís...ég hlakka svooo til að komast út úr húsi lengur en í hálftíma eða eitthvað, það er nebblega 20 stiga hiti hér og bara komið sumar með blóm í haga og allt og á bara að verða betra með hvurjum deginum.  ég reyni kannksi að taka myndir á morgun í veislunni og setja hér svo að þið getið séð hversu fallegt það er í sólinni:)  Svo ætla ég bráðum í klippingu aftur og láta stytta lubbann sem hefur myndast á haus mér, þetta bara vex og vex, ekkert stutt lengur.  ég vil sko vera fín þegar ég kem heim til ykkar, sem verður líklega í kringum 20.júní, ég er samt ekki búin að kaupa miða! en nú skal skrifa meir um hjallstefnuna góðu... Yfir og út.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 13:21:57 / eygloms

Bjór !

Stal þessu frá blogginu hans Dr.Gunna, soldið kúl bjórauglýsing...ég er á fullu annars að skrifa BA...skrifa meir hér seinna bæbæbæ

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 08:37:19 / eygloms

Eldur hressur

Hæ!  Nú er klukkan hálfellefu að morgni miðvikudags og ég fór ekkert að sofa í nótt.  Ég svaf nebblega svo lengi í gær eftir að hafa vakað lengi nóttina þar áður og mér fannst bara bruðl á tíma að fara að sofa í nótt, því ég hefði ekki sofnað fyrr en allt of seint og þá hefði ég sofið allt of lengi í dag líka... og eins og þið vitið á gengur líf mitt útá það núna að skrifa og skrifa og skrifa og líka að horfa á allt fólkið sem situr fyrir utan gluggann minn í sólbaði og hefur það gott í fokking veðrinu sem kom akkúrat núna þegar ég get ekkert gert neitt nema að vera inni og skrifa...  Ég er orðin doldið þreytt núna, sem er pirrandi af því að ég vil ekki leggja mig neitt í dag því ég vil frekar fara bara snemma að sofa í kvöld og vakna snemma á morgun.  Ég fór meira að segja útí búð um leið og hún opnaði og Biggi fór í vinnuna og keypti ananas og banana og epli og jógúrt og gerði rosa góðan drykk í magicbulletinu mínu og setti sólblómafræ útí líka...ég hélt að svona gasalega hollur drykkur myndi bara kickstarta mér í gang en hann gerði ekkert gagn, nema náttlega að seðja hungur mitt og vera góður á bragðið en ég er orðin þreytt, of þreytt til að skrifa eitthvað að viti, ég sit bara og horfi á blaðsíðurnar og skrolla upp og niður þær...geri ekkert!  En þetta hlýtur að ganga yfir, ég get kannski haldið mér fram yfir hádegi að gera mest lítið og þá er ég fín held ég... eldhress meira að segja kannski bara:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 13:21:34 / eygloms

Krulla

Mig langar að krulla á mér hárið, ekki permanentkrullur og ekki endilega fastar krullur heldur svona flotta liði sem eru svona gamaldags...kannski ætti ég að fá mér krullujárn eða svona carmen rúllur! þá get ég gert það bara stundum þegar mig langar... Mig langar að vera fín og sæt í sumar:) Það er komið verulega gott vor í hólminum alltaf svona 12 -15 stig og sól svona yfirleitt, bráðum kemur sumarið og þá verð ég að vera búin að skrifa þessa blessuðu ritgerð svo ég geti valhoppað um göturna með liðaða hárið mitt!! Ég þarf bráðum að fara að kaupa mér miða heim og þar með ákveða hvenær ég ætla að koma og hvenær ég byrja að vinna...ég er að gæla við þá hugsun að fara á Hróarskeldu, því að nú get ég það án þess að þurfa að vesenast með frí og sona, en ekkert er ákveðið enn því miður...

..........

Er byrjað að selja bláan opalsnafs á börunum í bænum?? Er það rétt??
Er að koma kreppa á Íslandi?? Verðum við ekki að gera plön ...kreppuplön??

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 13:45:03 / eygloms

Ráð óskast!!

Nú er verið að neyða okkur blog central notendur að breyta blogginu okkar yfir i sirkus blogg, þá heitir það minnsirkus...ég ætla ekki að gera það...huh! Ég veit samt ekki alveg hvað það er.

Nú þarf ég að rumpa af einu stykki BA ritgerð fyrir 15. maí í síðasta lagi, helst fyrr, allra helst vildi ég vera búin með hana svona 6. eða 7. maí svo að ég gæti látið lesa hana almennilega yfir og soleiðis áður en ég skila henni. Ég er byrjuð á henni alveg og er búin með fullt en ég á líka alveg fullt eftir og ég á voðalega erfitt með að koma mér aftur í gírinn eftir að Særós fór...það var mjög gaman að hafa hana hér í hólminum og þakka ég henni góðar stundir!!

En ég þarf eitthvað búst til að geta setið við og skrifað eins og moðer... er einhver með góð ráð handa ráðalausri konu??

» 1 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 07:49:58 / eygloms

Jeiej fleiri kvissar!! Ég hef greinilega ekkert að segja:)

 
You Are an Excellent Cook
You're a top cook, but you weren't born that way. It's taken a lot of practice, a lot of experimenting, and a lot of learning.
It's likely that you have what it takes to be a top chef, should you have the desire...

 http://www.blogthings.com/areyouagoodcookquiz/

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 20:05:03 / eygloms

Ég er um það bil á réttri braut!

 

You scored as Sociology. You should be a Sociology major!

Psychology

100%

Sociology

100%

Anthropology

100%

Journalism

92%

Mathematics

75%

Linguistics

75%

Philosophy

75%

English

67%

Biology

58%

Theater

58%

Dance

58%

Art

50%

Engineering

50%

Chemistry

25%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com



» 1 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 15:59:35 / eygloms

Skoða skoða!!

Hæ! Ég vildi bara minna á þetta ég setti þetta hingað fyrir löngu síðan en ég held að Auður hafi verið sú eina sem kíkti á! Ég bara bið ykkur...þið verðið að sjá...og hlæja og gráta! Þetta lýsir upp hina grámyglulegustu daga!  Ég rakst nebblega á þetta í dag inná öðru ágætu bloggi um daginn og mundi hversu mikið ég hafði skemmt mér þegar ég sá þetta fyrst fyri dotlu síðan á einu af vöfrum mínum um vefinn.  Þau sem þarna syngja heita Armi og Danny.  Armi Aavikko var víst valin ungrfú Finnland hér í den.  En hún er dáin núna blessunin. Ég veit ekkert um hann Danny...

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 23:14:14 / eygloms

Eymd...?

Mér leiðist núna og ég er með heimþrá...Biggi er á Íslandi en kemur heim á þriðjudaginn, ég hlakka til þegar það gerist. Ég á að vera að læra eins og alla aðra daga og kvöld og morgna, en auðvitað er ég ekki að gera það, því ég er að velta mér uppúr eymd minni og volæði, sem ég átta mig alveg á að er ekkert voðaleg...en nógu mikil fyrir sakleysingja eins og mig. Mér finnst allt í einu ritgerðarefnið mitt ekkert áhugavert lengur og ég skil ekki afhverju ég valdi það, ég nenni ekki að skrifa um það, en það er víst of seint núna...ég verð bara að mjaka mér í gegnum þetta og reyna að gera það sómasamlega svo að ég fái nú godkänt fyrir blessaða ritgerðina. Ég á að skila henni 15.maí og svo ver ég hana 29.maí Ég fer í sumarfrí 30.maí...svona fyrir ykkur að geta fylgst með hvernær eymd minni lýkur. Að vísu er bjart framundan og á mánudaginn í næstu viku, þann tíunda kemur vinkonan og hristir aðeins uppí mér...ég hlakka líka til þess. Mamma og pabbi koma líka í maí. Svo kem ég heim í júní einhverntímann...hlakka líka til þess.

Undanfarið hef ég voðalega mikið verið að hugsa um hvað ég ætla að skíra eða nefna börnin mín...ég er með fullt af nöfnum í huga sem bara bíða eftir því að komast í notkun...ég hlakka líka til þess...


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 11:56:26 / eygloms

Tvshop here I come...

Haldiði að ég hafi ekki keypt mér lífsnauðsynlega vöru á sjónvarpsmarkaðnum...nú er ég endanlega orðin amerísk húsmóðir! Ég keypti mér The Magic Bullet sem er svona mixer og matvinnsluvél allt í einu!! sem hakkar og rífur og sker og svo fylgir með safapressa og blender og ég veit ekki hvað og hvað! Nú bíð ég bara spennt í 10-14 daga og þá get ég farið að gera allt sem ég hef ekki getað gert áður en ég fékk Magic Bullet! Kíkið bara á tvshop.se og þá sjáiði dýrðina!!

Það er 9,4 stiga hiti í skugganum fyrir utan eldhúsgluggann minn og svo er soldil sól úti líka...loksins loksins!! Jibbíkóla vorið er komið!! Nú er sko komin tími til að hvíla úlpuna og kuldastígvélin!

Ég veit að ég sagðist ætla að gefa skít í MySpace en ég bjó mér samt til þannig núna áðan, bara til að prófa! Ef einhver er með þannig endilega leyfið mér að vera mem... það er http://www.myspace.com/eyglomargret
ég er í rauninni að gera allt þetta, líka að blogga, til að vera að gera eitthvað annað en að læra...

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:39:32 / eygloms

Lærismæri.

Ég get ekki byrjað að læra! Ég er búin að margreyna, en ég enda alltaf með því að vafra aftur inná veraldarvefinn og heimsækja þær heimskustu síður sem ég bara hef séð. Ég er t.d búin að fletta í gegnum 4 síðustu tölublöð af tímaritinu Sirkus sem að mér þykir vera ansi lélegt og frekar illa skrifað blað. Það er líka það sama í hverju einasta blaði, sem kannski er allt í lagi þegar það kemur út einu sinni í viku, ég veit ekki... Um helgina fór ég í skíðaferð til Sälen sem er 5 klukkutíma norður af Stokkhólmi. Það var frábært og magnað í alla staði, bara það að komast útúr bænum, uppí sveit í kyrrð og frið var yndislegt og ekki verra vara að skoða rauðu Astrid Lindgren húsin á leiðinni, þau eru svo sæt og eitthvað rómantísk, ég ímynda mér alltaf að í þeim búi 5 manna fjölskylda sem situr við opinn arineld og borðar góðan mat við stórt tréborð og eitthvað blabla... allskonar voða indælt allavega:D Ég var þrusugóð á skíðunum, ég hélt mig samt í minni brekkunum bara og datt bara nokkru sinnum. Biggi vara bara eins og atvinnumaður á þeim, miklu betri en hann minnti sjálfan meira að segja. Við fórum líka á snjósleða sem þau eiga fólkið sem við vorum með þarna og þetta vara bara frábær helgi í alla staði held ég barasta. Það er nauðsynlegt að fara svona og ætla að öðlast nýjan kraft fyrir komandi vikur sem eru fullar af BA ritgerðaskrifum og veseni, en ég held bara að ég hafi ekkert öðlast neinn meiri kraft neitt, nú er ég bara að hugsa um sumarið og næsta haust og hvað ég ætla að gera þá og ég nenni engan veginn að læra. Ég þarf að skila verkefni í dag sem ég get ekki byrjað á. Ég held ég verði að geyma það þar til á morgun bara, kannski að ég reyni að byrja samt á því í dag svona til að gera eitthvað. Nú eru bara 13 dagar þangað til að Særós heillin kemur til mín, það sá ég á blogginu hennar! Tíminn líður svo hratt að ég veit ekki hvað á mig stendur veðrið! Vitið þið það?? 

Ég er að reyna að muna eftir einhverju sem gæti verið að frétta af mér en mér dettur ekkert í hug... Á miðvikudaginn síðasta fórum við með Kötu og Andreasi og fleiri góðum hingað yfir túnið á háskólapöbbinn í nokkra bjóra, það endaði náttlega með ósköpum, með bæjarferð og svo heim til K&A þar sem við Kata drukkum Havana og hlustuðum á hálft plötusafn heimilisins fram á morgun með tilheyrandi söng og dansi. Biggi stakk af heim þegar við komum úr bænum enda vinnandi maður og þetta á miðvikudegi, ég er bara kærulaus námsmaður sem ekkert veit í sinn haus og þykir tímanum vel varið í rommþamb og vökur fram undir morgun, tala nú ekki um ef skemmtileg tónlist fylgir með í pakkanum, þá geta svona undursamleg óvænt fylleríiskvöld orðið kveikjan að ýmsum lífsumbrota ákvörðunum og lausnum á heimsvandamálunum. Ég mætti meira að segja í skólann daginn eftir og bara mjög lítið þunn...þá er ekki hægt að sjá eftir neinu og lífið er eintóm hamingja!     


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6